Stimpilkortið fer í símann. Viðskiptavinirnir koma oftar.
Stafræn stimpilkort·klippikort·vildarkort
Engin pappírskort sem týnast. Kortið býr í Apple og Google Wallet, uppfærist sjálft og minnir á þig. Og þú getur sent öllum korthöfum skilaboð beint á lásskjáinn, frítt.
- Ekkert app
- Tilbúið á tveimur mínútum
- Ekkert greiðslukort til að byrja
- Íslensk þjónusta, á íslensku
Viðskiptavinur kaupir kaffi
Starfsmaðurinn skannar kortið í síma eða spjaldtölvu og ýtir á Stimpla.
Senda öllum korthöfum skilaboð
Lendir á lásskjánum hjá öllum sem eru með kortið. Kostar ekkert.
Viðskiptavinur gengur framhjá
Kortið minnir á sig þegar viðskiptavinurinn er nálægt.
Prófaðu sjálf(ur) — í alvöru.
Skannaðu kóðann með myndavélinni í símanum, settu sýniskortið í Wallet og gefðu þér stimpil. Þú sérð kortið uppfærast á lásskjánum eftir nokkrar sekúndur, alveg eins og viðskiptavinirnir þínir.
Fá sýniskort →Svona virkar það í þremur skrefum
Þú þarft ekkert app, engan búnað og enga tækniþekkingu. Viðskiptavinirnir ekki heldur.
QR-kóði við kassann
Viðskiptavinurinn skannar með myndavélinni og kortið fer beint í Wallet. Tekur 5 sekúndur.
Stimplað við hver kaup
Starfsmaður skannar kortið og ýtir á Stimpla. Kortið uppfærist um leið í símanum.
Þeir koma aftur
Verðlaun, áminningar þegar þeir eru nálægt, og skilaboð frá þér beint á lásskjáinn.
Af hverju ekki bara pappírskort?
Pappír týnist
Fólk gleymir kortinu heima eða hendir því. Stafræna kortið er alltaf í símanum.
Þú veist ekkert
Með pappír veistu ekki hverjir koma aftur. Hér sérðu fjölda, endurkomur og innleyst verðlaun.
Engin leið til að ná í þá
Nú geturðu sent öllum korthöfum tilboð og fréttir á lásskjáinn, frítt, hvenær sem er.
„Svona að gamni mínu fletti ég upp hvað ég hef eytt í stimpilkort síðustu ár. Það er 130.000 kr. á ári að meðaltali, svo þetta er árlegur sparnaður upp á tæplega 50.000 kr.“
Sjá umfjöllun í Viðskiptablaðinu: „Setur stimpilkortin í símann“ →
Kortið nær í þá sem hætta að koma.
Flestir fastakúnnar hverfa ekki af því þeir eru óánægðir, heldur af því þeir gleyma. Stimpill minnir þá á þig, sjálfkrafa.
- Þú skrifar skilaboðinT.d. „Við söknum þín! Tvöfaldur stimpill ef þú kíkir við í vikunni.“ Þú getur breytt þeim hvenær sem er.
- Þau fara sjálfkrafa út eftir 30 dagaHver viðskiptavinur fær þau einu sinni, 30 dögum eftir síðustu heimsókn. Komi hann aftur byrjar talningin upp á nýtt.
- Þú sérð hverjir komu afturYfirlitið sýnir hve margir fengu skilaboðin og hve margir komu aftur í kjölfarið.
Eitt verð. Allt innifalið.
Engin aukagjöld fyrir skanna, engin gjöld á hvert kort og engin tilboð sem þarf að biðja um. Þú veist nákvæmlega hvað þú borgar.
Allt starfsfólkið getur stimplað, í eins mörgum símum og spjaldtölvum og þú vilt. Og þú getur haft eins marga korthafa og þú vilt.
30 dagar frítt og ekkert greiðslukort þarf til að byrja. Ef þetta hentar ekki gerirðu ekkert og það kostar ekkert.
Stimpill
- Ótakmarkaður fjöldi korthafa
- Stimpilkort og klippikort, eins mörg og þú vilt
- Apple Wallet og Google Wallet
- Kort á íslensku og ensku
- Skanni fyrir allt starfsfólk
- Skilaboð á lásskjá, frítt
- Sjálfvirk „við söknum þín“ skilaboð
- Áminning þegar viðskiptavinur er nálægt
- Yfirlit yfir korthafa og endurkomur
Algengar spurningar
Finnurðu ekki svarið? Sendu mér línu, ég svara sjálfur.
Þurfa viðskiptavinirnir að sækja app?
Nei. Þeir skanna QR-kóðann með myndavélinni, skrifa fornafn og símanúmer og kortið fer beint í Apple Wallet eða Google Wallet, sem er þegar í símanum.
Er þetta app fyrir stimpilkort?
Nei, það þarf ekkert app. Stimpill er rafrænt stimpilkort og rafrænt klippikort sem fer beint í Apple Wallet eða Google Wallet, sem er þegar í símanum. Þú færð samt allt sem gott vildarkerfi gerir: þú sérð hverjir koma aftur, sendir skilaboð á lásskjáinn og nærð í þá sem hætta að koma.
Get ég selt klippikort, t.d. 10 bolla á verði 8?
Já. Þú býrð til klippikort og velur tilboðið og gildistímann. Viðskiptavinurinn fær kortið frítt í símann og borgar pakkann við kassann eins og venjulega. Starfsfólk ýtir á „Hlaða“ í skannanum og klippir svo af í hvert skipti. Kortið sýnir alltaf hve mikið er eftir. Hægt er að hafa stimpilkort og klippikort hlið við hlið á sama plakati.
Hentar þetta sundlaugum, líkamsræktum og sveitarfélögum?
Já. Rafrænt klippikort hentar vel í sund og líkamsrækt: kortið er í símanum, starfsfólk hleður það þegar greitt er og klippir af í hvert skipti, og þú sérð nákvæmlega hvað er keypt og notað. Engin pappírskort sem týnast. Sveitarfélög og stofnanir geta haft samband fyrir tilboð.
Hvað þarf starfsfólkið?
Bara síma eða spjaldtölvu með myndavél. Starfsmaður opnar stimplasíðuna, skráir sig inn með PIN-númeri og skannar kortið. Ef viðskiptavinurinn gleymdi símanum er hægt að finna kortið eftir símanúmeri.
Hvað með fastakúnna sem eru með pappírskort?
Ekkert mál. Starfsmaðurinn getur gefið marga stimpla í einu, svo stimplarnir af pappírskortinu flytjast yfir þegar viðskiptavinurinn fær nýja kortið.
Er hægt að svindla á kortinu?
Hvert kort er með einstökum kóða sem bara kerfið getur búið til, stimplað er bara með PIN-númeri starfsfólks og kerfið varar við ef sama kort er stimplað aftur strax. Eitt kort á hvert símanúmer.
Hvað gerist eftir 30 daga prufutímann?
Þú skráir greiðslukort í stjórnborðinu ef þú vilt halda áfram. Ef þú gerir ekkert hætta kortin bara að taka við stimplum og það er ekkert rukkað.
Get ég sagt upp hvenær sem er?
Já, engin binding. Þú segir upp í stjórnborðinu eða á aithjonusta.is/afskra.
Getur þú sett þetta upp fyrir mig?
Já. Ef þú vilt kem ég og set kortið upp með þér, hengi upp QR-kóðann og kenni starfsfólkinu á skannann. Sendu mér línu.
Engin stór skrifstofa. Bara ég.
Hæ, ég heiti Steinar Gunnbjörnsson og ég byggi og rek aithjonusta.is einn. Stimpill er gerður fyrir lítil fyrirtæki sem vilja stimpilkort og ekkert flóknara: ekkert tæknivesen, engar viðbætur og engin binding.
Stimpill er nýr, og það er kostur fyrir fyrstu fyrirtækin: ég kem sjálfur á staðinn og set þetta upp með ykkur, og það sem þið biðjið um fer beint í næstu útgáfu.
Ef þú hefur spurningu, eða vilt að ég komi og setji þetta upp með þér, sendu mér línu eða hringdu í 772 7190. Það er ég sem svara, ekki þjónustuver.
Spurning, eða þarftu eitthvað sérstakt?
Sveitarfélag, stærri keðja, eða þarftu sérlausn, t.d. tengingu við kassakerfi eða sjálfsala? Segðu mér hvað þú þarft og við finnum út úr því saman.
Ég svara yfirleitt samdægurs.